PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar
Show on deck
Safndiskurinn PartyZone´97: Margeir + Andrés
Party Zone: Margeir + Andrés Útgáfudagur, sumar 1997. Útgefandi Japis/PZ Plötusnúðar: Andrés og Margeir Loksins gáfum við út disk um sumar en þessi kom út rétt eftir verslunarmannhelgina. Útgáfuhátíðin fer eins og hinar þrjár á spjöld sögunnar sem eitt af bestu kvöldum þáttarins og þótt víðar væri leitað. Við ákváðum að halda hana í "gini ljónsins", þ.e. í höfuðvígi hnakkana á þessum tíma, Skuggabarnum á Hótel Borg. Það er skemmst frá því að segja að staðurinn var lagður í rúst á þessu ógleymanlega kvöldi þar sem senan komst í gott og skemmtilegt návígi við hinn almenna borgara. Diskurinn var sumarplata talsvert á undan sinni samtíð þar sem um var að ræða latin/jazz skotna húsblöndu með 70´s fíling. Það var talsvert síðar sem danspoppið fór yfir í þessar pælingar. Tækninni hafði líka fleytt fram (hehe) og var diskurinn tekinn upp í heimahúsi í einni töku sem gefur honum skemmilegt krydd, Margeir og Andrés smellpössuðu í þessa pælingu. Salan á disknum var mjög góð þar sem lög af honum fengu allgóða spilun í útvarpi fram eftir haustinu. Hann á enn heima í spilaranum enda klassík....skoðið bara lagalistann, uppfullur af múmíum.
Tracklist
- Atmosfear - Dancing in Outer Space
- Bah Samba - Reach inside
- Dr Bob Jones & No Tenshun - The More I Get, The more I Want
- Brand New Heavies - Sometimes
- Áme Strong - Tout Est Bleu
- Sixteen Souls - On My Mind
- Bah Samba - Samba Beats
- Summer Daze - Samba Magic
- Corvino Traxx presents Primo
- Johnny L - This Time
- Azymuth - Jazz Carnival
- Roy Davis Jr - Gabrielle
- Basement Jaxx - Flylife
- The Knowledge - Until the Day
- The Heartists - Belo Horizonti
- Joe Claussell & Kerri Chandler - Escravos de Jo
- Roy Ayers - Everybody Loves the Sunshine