PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar
Show on deck
PartyZone´95 - Þáttur 4
1997 og síðustu ár níunnar í fjórða þættinum af Party Zone 95 verður aðaláherslan á árið 1997 ásamt síðustu árum níunnar til og með 1999. Mix þáttarins er vel valinn bútur af Party Zone 97 disknum sem þeir Andrés og Margeir settu saman á sínum tíma. Mjög sumarlegur diskur sem hefur svo sannarlega elst vel. Farið verður vítt og breitt í danstónlistinni frá þessum árum eins og hægt er í rúmlega 90 mínútna þætti, allt frá breaks yfir í diskó hús og þaðan í teknó. Að vanda verður spiluð klippa út gömlum Party Zone þætti frá þessum tíma og í þetta skipti er það klippa úr þætti sem fluttur var á X-inu í lok apríl 1997 þar sem mikið stuð var í gangi og verið að hita upp fyrir sumarið.