Settu slóðina https://podcast.pz.is/ í uppáhalds podcast forritið þitt til að gerast áskrifandi.
Put the URL https://podcast.pz.is/ in your podcast feed reader for subscription.
Party Zone - Undir diskókúlunni : 12. júlí
Diskókúlan snýst áfram og við rifjum upp tryllt tímabil á dansgólfunum. Við förum aftur til ársins 1990, rifjum upp topplög PZ listans fyrir 30 árum og 20 árum. Gestur þáttarins er Nökkvi Svavarsson (DJ Nökkvi) sem var einn af forsprökkum Skuggabarsins sem var einn heitasti staður bæjarins í ein 6 ár, einnig myndaði hann dansdúóið Housebuilders með bróður sínum Mána Svavarssyni. Hann rifjar upp skemmtilega tíma og velur fjögur lög sem stóðu uppúr. Dansslagarar fortíðar og Diskóþrennan á sínum stað.